frá því að ég skrifaði síðast erum við búin að fara á ættarmót Gromsara á Laugum í Sælingsdal og vorum við aðeins rúmlega 250 manns þar samankomin og var það mjög gaman. Við komum svo heim 20 júlí og vorum þá búin að vera í 20 daga í burtu

Við nýttum þessar tvær vikur vel sem við vorum heima, Hilmar þurfti reyndar að skreppa suður að ná í Pál í slipp en á meðan ákvað ég að hætta að reyna þessa "grillpinnaræktun" (setti niður græðlinga fyrr í sumar og voru þeir eins og grillpinnar) og fór og keypti mér 10stk af Douglasarvíðir og vona ég að það muni plumma sig, en Ásthildur ráðlagði okkur að setja niður eitthvað til að draga úr vindinum og var Hilmar nú ekki lengi að redda því og keypti girðingareiningu og setti upp.
Okkur var boðið í grill hjá Ingu og Gísla og var mjög huggulegt og gaman og endaði með því að Eva Björg varð eftir og svaf hjá tvíburunum:þ
Við ætluðum að fara á flandur um verslunarmannahelgina en ákváðum að vera heima og bjóða mömmu, pabba og Bjarka vestur, veðrið var alveg frábært og sagði pabbi marg oft " þett er alveg ótrúlegt veður miðað við Ísafjörð"



Okkur var svo boðið í síðbúið 40 ára afmæli hjá Ragga Sæsa á laugardagskvöldið og var grillað marg rétta og svignuðu borðin undan mat og einnig var allt á floti af drykkjarföngum, sumir drukknuðu

en aðrir höfðu kúta:þ en við nefnum engin nöfn. Takk fyrir frábæra veislu

Nú svo var bara mætt í sund í Bolungarvík kl:10:30 morguninn eftir og svo var farið í fjallgöngu og enduðum við á að fara yfir að Holti og taka þátt í sandkastalakeppninni og gerðum við píanó og gekk það svona og svona,,, en við verðum betur undirbúin næst en alltaf á að muna að það er gaman að vera saman og taka þátt

Nú svo um kvöldið var okkur boðið að taka spil heima hjá Ingibjörgu og Hæa en þar sem við vorum enn í þurrki eftir kvöldið áður var bara kvöldið tekið rólega en spilað framá kl:2:30, en Ingibjörg mín átti afmæli þann 4. ágúst

Svo héldu helgar gestirnir suður. Við ættluðum að fara á þriðjudeginum í smá útilegu en Sigþór fékk boðskort í afmæli hjá Balla vini sínum og átti að halda uppá það í Vigur, ekki hægt að sleppa svona spennandi boði því var brottför frestað þar til eftir veisluna á miðvikudeginum og við afstað þá og keyrðum á Stykkishólm og fórum beint í sund og svo var tjalvagninn reistur og bara huggó. Nú auðvitað var farið í sund um leið og það var vaknað og svo var pakkað saman og farið afstað og snæfellsnesið skoðað. Við enduðum í Borgarnesi og í sund (hvað annað) og þá var það spurningin áttum við að reisa vagninn eða fara í Mosó, það var sumsé ákveðið að faraí Mosó útaf rigningu. Við létum engann vita af okkur og mættum bakdyramegin hjá mömmu og pabba og held ég að mömmu hafi aldrei brugðið eins mikið


Á föstudeginum fórum við beint í sund í gömlu laugina í Kópavogi og er hún alveg hreint út sagt frábær, búið að gera heilmikið við hana og fínerí. Svo var haldið af stað í 365 miðla því krakkarnir voru svo heppin að vinna í Wall-E leiknum á Bylgunni. Þá var komið að því að pakka saman fyrir krakkana því þau fóru svo í bústað með ömmu og afa en við "gamla" settið fórum á Eric Clapton tónleikana og svo beint austur í í bústað til þeirra þar vorum við framá mánudag og fórum þá heim í sæluna

Það eru margir búnir að spyrja um tónleikana með Eric Clapton og ætla ég þvi að segja ykkur mína skoðun hér
Það var mjög gaman að upplifa það að fara á tónleika með "gamla" manninum, en einnig bara yfir höfuð að fara á svona stóra tónleika því ég hef aldrei farið á svona stóra tónleika EN ég get sagt ykkur það að ég varð fyrir vonbrigðum

held að aðeins allhörðustu aðdáendur hans hafi notið sín því hann spilaði aðeins 2 þekkt lög og það versta af öllu hann spilaði ekki Layla



Sumsé eins og staðan er gaman að fara en myndi ekki fara aftur á tónleika með honum